Nordic Wasabi smjör
Nýsköpunarfyrirtækið Jurt var stofnað með það að markmiði að nýta þær auðlindir sem að Ísland hefur upp á að bjóða, vatnið, jarðhitann og rafmagnið í að rækta nýjar og spennandi afurðir. Wasabi varð fyrir valinu. Wasabi plantan er erfið í ræktun og vex villt í árfarvegum í Japan. Plantan vill mikið vatn og kalt loftslag og er því kjörin til ræktunar á Íslandi. Wasabi er eins og margir þekkja notað með sushi. Það sem færri vita þó að oftast er um að ræða eftirlíkingu sem er blanda af piparrót, sinnepi og matarlit og á ekkert skilt við alvöru wasabi. Síðan að Nordic Wasabi kom á markað hefur það hefur fengið mikið lof frá færustu matreiðslumeisturum og verið notað á mörgum af bestu veitingahúsum í heimi.
Það er þó oft sem við fáum spurningar um aðra notkunarmöguleika fyrir Nordic Wasabi en að bjóða uppá það með sushi?
Nordic Wasabi parast frábærlega með kjöti, fisk, grænmeti og jafnvel má nota það í eftirrétti, en það parast t.d. mjög vel með bæði dökku og ljósu súkkulaði.
Við höfum þá oft sagt fólki að prófa að setja það út í smjör, þeyta smjör og setja wasabi útí. Það parast ótrúlega vel og tilvalið að bera fram með hverju sem hugurinn girnist, til dæmis ofan á steikina, fiskinn eða á kartöflurnar. Nú er Nordic Wasbi smjör komið á markað, framleitt í samstarfi við ORA.
Wasabi Smjörið er með ekta íslensku Nordic Wasabi, bæði rótinni og laufum.
Wasabi og smjör er óvænt blanda sem virkar svo undurvel saman. Kryddað smjörið passar með svo ótal mörgu.